Nú er pressað harkalega á þingmenn og þjóð að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um stuðning við viðræður við ESB. Það er margt merkilegt í þessu finnst mér. Þeir hópar sem hrópa hæst í því efni eru hinir svokölluðu Sjálfstæðismenn. Nú síðast lagði Þorgerður Katrín þetta til og þykir mönnum að mikið óréttlæti sem hér framið á þjóðinni að hún sé ekki spurð álits í þessu mikilvæga máli. Það má svo sem færa alls kyns rök fyrir þessu gjörningi t.d. tilfinning andstæðinga fyrir því að það sé alls ekki mikill stuðningur við þessa umsón, að fólk almennt vilji stoppa þetta ferli o.s.frv. En nýjustu kannanir sýna reyndar að mikill meirihluti þjóðarinnar er fylgjandi því að klára samningaferlið við ESB og sjá hvað er í pakkanum. En við getum svo sem rætt að hafa þetta formlegt og halda þjóðaratkvæðagreiðlsu um málið og þá er það official.
Fyrst við gerum svona mikið úr þjóðaratkvæðagreiðslum væri þá ekki úr vegi að halda einmitt þjóðaratkvæðagreiðslu um stuðning þjóðarinnar við fiskveiðifyrirkomulagið, kvótann? Ættum við ekki bara að athuga stuðning þjóðarinnar við það mikilvæga mál? Ég legg til að við höldum þjóðaratkvæðagreiðslu um stuðning þjóðarinnar við áframhaldandi við ræður við ESB og um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu – ég er viss um að Sjálfstæðismenn styðja mig þarna heils hugar, því þeir eru svo miklir áhugamenn um þjóðaratkvæði.
Kannski til að uppfylla þeirra æðsta draum um stuðning þjóðarinnar með þjóðaratkvæðagreiðslum, mætti kannski ekki minna á nýjustu þjóðaratkvæðagreiðsluna og hvaða vísbendingar um þjóðarvilja koma þar fram? Stjórnarskráin – hún er mikilvæg. Það var haldin þjóðaratkvæðagreiðsla. Þjóðin tjáði sig. Eigum við ekki þá í þessu þjóðaratkvæðagreiðsluæði okkar að fara eftir þeirri atkvæðagreiðslu og samþykkja frumvarp um nýja stjórnarskrá? Eða erum við ekki bundin af þeirri þjóðaratkvæðagreiðslu, eins og “þingmaðurinn” Birgir Ármannson (gæsalappatrix Davíðs Oddsonar) komst að í ræðustól Alþingis um daginn?
Eða getur verið að Sjálfstæðisflokkurinn sé bara fylgjandi því að halda fullt af þjóðaratkvæðagreiðslum, til að fólk fái einhvern veginn á tilfinninguna að það ráði einhverju, en telja sig svo ekki bundna af niðurstöðunni ef hún hentar ekki hagsmunapoti FLokksins? Já ég held það bara.

